„Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að gegna trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á undanförnum árum sem framkvæmdastjóri þingflokksins, aðstoðarmaður ráðherra, frambjóðandi í tvennum alþingiskosningum og ráðherra í tveimur ríkisstjórnum. Þetta hafa verið krefjandi verkefni en fyrst og fremst gefandi, því að það er í senn ástríða mín og forréttindi að vinna að framgangi sjálfstæðisstefnunnar, eiga samtöl og samvinnu við fólk og hlúa að framtíð og tækifærum íslensks samfélags,“ segir í pistlinum.
Áslaug sagði að þessi ákvörðun hennar væri í samræmi við yfirlýsingar hennar þegar hún tók tímabundið við embættinu í haust. Þá sagðist hún ætla að gefa kost á sér áfram sem ritari flokksins. „Þetta hafa auðvitað verið frekar óvenjuleg ár – tvær alþingiskosningar og við misstum okkar öflugustu stjórnmálakonu – þannig að mig langar mikið að halda áfram að sinna því starfi,“ sagði Áslaug.