Ráðherrann trúir mér alls ekki

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á SÁÁ, fór mikinn í Þjóðbrautarþætti dagsins. Hann sagði SÁÁ vera við að gefast upp með að halda uppi óbreyttri þjónustu. Hann segir stöðuna aldrei hafa verið verri.

Þórarinn segir að samskipti sín við Kristján Þór Júlíusson markast af því að ráðherrann trúi sér ekki. Þórarinn bendir á að enginn vilji að SÁÁ hætti sínu starfi. Hann nefndi að á hverju ári vanti 120 milljónir til reksturs Vogs. Það sem á vantar fæst með frjálsum framlögum. Frá einsaklingum og minni fyrirtækjum. „Við fáun nánast ekkert frá sveitarfélögum eða stórum fyrirtækjum.“ Hann bendir að alkóhólista hafi lagt til húseignir til heilbrigðismála að verðmæti um tvo millljarða.

Eftirmeðferð kostaði sjúklinga ekkert áður en kostar nú sjötíu þúsund. „Staðan er skelfileg.“