Þórarinn Ævarsson sagði óvænt starfi sínu lausu hjá IKEA síðasta mánuði en þar hafði hann starfað frá árinu 2006. Þar hafði hann starfað sem framkvæmdastjóri um árabil við góðan orðstír. Í Markaðnum sem fylgir Fréttablaðinu í dag segir að Þórarinn vinni nú að því að opna pitsakeðju.
Vildi Þórarinn ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Þórarinn var einn af þeim sem stofnuðu Domino‘s árið 1993. Þá var hann yfirmaður frá 2000 til 2005. Þar lækkaði hann launakostnað með því að hækka laun starfsmanna. Um þann tíma sagði Þórarinn í samtali við DV.
Ég var kallaður heim í snarhasti, það var mikill uppgangur og mikið að gera hjá Domino’s en um leið var bullandi tap, Fyrirtækið hafði stækkað of ört og launakostnaður var alltof hár. Það var verið að brenna laununum í stað þess að hafa færri starfsmenn sem vissu hvað þeir voru að gera. Hugsunin var: Borgum eins lág laun og við getum. Starfsmenn komu inn og fóru út, þetta var eins og strætóstoppistöð.
Ég kom með tillögu til stjórnar, sagði að til að lækka launakostnað þyrftum við að snarhækka laun. Ég náði að selja stjórninni þessa hugmynd og hækkaði laun um 30 prósent. Það fyrsta sem gerist þegar maður hækkar laun um 30 prósent er að þau hækka bara, maður sér engan árangur. Tapið hjá okkur jókst. Það tók sex mánuði að snúa þessu við. Svo allt í einu fór þjónustan að batna af því að komið var til starfa þjálfað fólk. Á fyrsta árinu lækkaði launakostnaður um 20 prósent.“
Þórarinn var einnig maðurinn á bakvið megaviku og eins að láta senda viðskiptavinum SMS í síma. Þórarinn þekkir því vel til í þessum bransa.
Þá segir í Markaðnum að ekki sé vitað hvaða sérleyfi Þórarinn sé að horfa til en hugsanlegt sé að annað hvort Papa John’s og Little Cesars sé í þeim hópi.