Þórarinn kemur ráð­herra til varnar: „Ég tel að Sigurður Ingi hygli ekki hvítum Ís­lendingum á kostnað þel­dökkra“

Þórarinn Hjartar­son þátta­stjórnandi hlað­varpsins Ein pæling kemur Sigurði Inga Jóhanns­sonar inn­viða­ráð­herra til varnar eftir um­mælin sem hann lét falla um Vig­dísi Häsler á Búnaðar­þingi.

„Það er fagnaðar­efni ef Sigurður Ingi er sá ras­isti sem við þurfum að hafa á­hyggjur af. Ég tel að Sigurður Ingi hygli ekki hvítum Ís­lendingum á kostnað þel­dökkra. Hann er vissu­lega karl síns tíma. Ný­leg um­mæli hans eru ekki til eftir­breytni og hann veit það. Við­brögðin, hins vegar, sýna á hversu slæmum stað flokkarnir í stjórnar­and­stöðu eru,“ skrifar Þórarinn í nýjum pistli á Vísir.is

„Það er fórnar­kostnaður fólginn í því að beina at­hygli kjós­enda að til­teknu mál­efni. Stjórnar­and­staðan sá sér leik á borði og keppist við að beina at­hygli að því hvað þau séu góð og hvað Sigurður er ó­mögu­legur. At­hyglin fór frá því að krefjast þess að fá að vita af hverju á­kveðnir aðilar fengu sím­tal um til­boðs­verð á eignum ríkisins, frá því að hinir ríku hafi fengið skatta­af­slátt af sér­eignar­sparnaði til fast­eigna­kaupa í ára­raðir og frá því að Ís­lendingar munu þurfa að takast á við gríðar­legar verð­hækkanir á næstu mánuðum vegna inn­rásarinnar í Úkraínu,“ bætir Þórarinn við.

Stjórnarandstöðuþingmenn voru í miklum ham á Alþingi í dag og krafðist Halldóra Mogensen þingmaður Pírata að forseti alþingis myndi stöðva þingstörf svo Sigurður Ingi myndi gefa munnlega skýrslu og skýra ummæli sín fyrir þinginu samkvæmt 61.gr þingskaparlaga.

„Það er sjálf­skapar­víti stjórnar­and­stöðunnar að hlusta á móðguðustu mann­eskjuna á Twitter. Af­leiðingarnar eru þær að ríkis­stjórnar­flokkarnir búa við ó­hugnan­lega auð­velt að­gengi að at­kvæðum kjós­enda og komast upp með pólitíska leti sem á sér fá dæmi utan Ís­lands,“ heldur Þórarinn hins vega áfram.

„Sigurður Ingi skeit upp á bak með þessum um­mælum. Hann baðst af­sökunar. Hann er mið­aldra maður og hefur lík­lega sagt eitt­hvað tölu­vert verra en þetta á sinni lífs­leið. Okkar sið­ferðis­þröskuldur hefur tekið hröðum breytingum undan­farna ára­tugi. Þessar breytingar hafa að mestu verið til hins betra,“ skrifar Þórarinn enn fremur og bætir við að krafan um Sigurður Ingi segi af sér kemur frá fólki sem hefur aldrei og muni lík­legast aldrei kjósa Fram­sókn.

„Það er rétt að stjórn­mála­menning hér á landi sé daprari en víða annars staðar. Það er mögu­lega rétt að Sigurður Ingi hefði þurft að segja af sér ef hann væri ráð­herra annars staðar á Norður­löndunum. En væri það betra? Það er hægt að færa rök fyrir því. Ég tel hins vegar að krafa flestra kjós­enda á Ís­landi sé að ráð­herrar séu starfi sínu vaxnir frekar en að þeir hafi aldrei og munu aldrei gera mis­tök,“ skrifar Þórarinn að lokum.