Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir segir að Reykjavíkurborg eiga að bera fjárhagslega ábyrgð á gatinu á milli fæðingarorlofs og dagvistunar barna. Þetta segir hún í færslu sem birtist á Twitter fyrr í dag og leggur þannig til úrlausn á þeim vanda sem skapast hefur í dagvistun barna í Reykjavík en fjöldamargir foreldrar koma ekki börnum sínum að á leikskólum.
Í færslunni tekur hún meðal annars fram að borgarfulltrúar verði að reyna að nýta sér glufur í „reglugerðarfeninu“ til þess að öll 12 mánaða börn komist að á leikskólum eins kosningarloforð fyrir sveitastjórnarkosningar sögðu til um.
Fjöldamargir foreldrar mættu til þess að mótmæla ástandinu í Ráðhúsi Reykjavíkur en dæmi eru um að börn allt að þriggja ára gömul fái ekki pláss á leikskólum vegna skorts á úrræðum.
Reykjavíkurborg ætti að bera fjárhagslega ábyrgð á gatinu milli fæðingarorlofs og dagvistunar barna. Í staðinn ýtir borgin vandanum yfir á foreldrið með lægri tekjur sem endar heima m barnið. Þetta stuðlar að ójafnrétti í samböndum og eykur enn á fjarhagsvanda einstæðra foreldra.
— Þóra Tómasdóttir (@thoratomas) August 13, 2022
Eykur á ójafnrétti í samböndum
Þóra segir að þetta stuðli að „ójafnrétti í samböndum og eykur enn á fjárhagsvanda einstæðra foreldra“ en mikið er um að þeir foreldrar sem ekki koma börnum sínum á leikskóla þurfi að minnka við sig vinnu eða segja henni upp til þess að sinna börnum sínum.
Þá nefnir Þóra sérstaklega að mögulega sé hægt að opna nýja leikskóla þrátt fyrir lóðir þeirra séu ófrágengnar og vísar þá til þess vanda sem komið hefur upp á nýjum leikskóla sem stóð til að opna við Nauthólsveg.