Þóra kristín: „við eigum semsagt bara að borga reikninginn? þakka þér“

Ríkið mun þurfa að greiða Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur 20 milljónir króna í bætur. Gengið var framhjá Ólínu þegar ráðið var í starf þjóðgarðsvarðar. Hefur Ólína gagnrýnt harðlega þá Ara Trausta Guðmundsson þingmann VG og formann þingvallanefndar sem og Pál Magnússon sem mun ekki hafa mætt þegar kynning á umsækjendum fór fram. Gengið var framhjá Ólínu af þeim Ara Trausta, Páli, Líneik Önnu Sævarsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni.

Ari Trausti hefur ekki viljað svara gagnrýni vegna málsins. Fjölmiðlakonan Þóra Kristín Ásgeirsdóttir sem nú starfar sem upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar gagnrýnir Ara harðlega á Facebook. Þar bendir Þóra Kristín á að Ari Trausti hafi hafnað Vísi um viðtal vegna klúðursins. Þóra Kristín segir um þá staðreynd að 20 milljónir lenda á skattgreiðendum:

„Stjórnmálamaður fær á sig dóm vegna embættisfærslu sem skattgreiðendur þurfa að borga og neitar að fara í viðtal og svara fyrir það. Þetta heitir að senda almenningi fingurinn. Við eigum semsagt bara að borga reikninginn? Þakka þér.“