Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur teiknað upp ríkisstjórn sem kalla má draumaríkisstjórn vinstrimanna eftir kosningar.
“Ný ríkisstjórn miðjufólks og jafnaðarmanna gæti sameinast um hærri veiðigjöld á stærstu útgerðir og sáttafarveg fyrir sjávarútveginn, hálendisþjóðgarð, auðlindaákvæði í stjórnarskrá og fleiri breytingar sem lúta að tillögum stjórnlagaráðs sem þjóðin samþykkti að leggja til grundvallar, hærra frítekjumark fyrir aldraða og öryrkja, auðlegðarskatt og afnám skatta á lægstu laun og bætur, hærri fjármagnstekjuskatt, stórsókn í loftslagsmálum, þar sem fyrirtæki þyrftu að borga fyrir að menga, stórsókn í heilbrigðismálum og svo mætti lengi telja,” segir Þóra Kristín á Facebook.
Birtir hún svo ráðherralistann:
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Kristrún Frostdóttir fjármálaráðherra
Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson utanríkisráðherra
Logi Einarsson menntamálaráðherra
Ásmundur Einar eða Lilja Alfreðsdóttir félagsmálaráðherra
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir umhverfisráðherra
Halldóra Mogensen iðnaðarráðherra
Hanna Katrín Friðriksson eða Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra
Bætir hún við að Þorgerður Katrín yrði þá líka landbúnaðarráðherra.
“Og kannski ef Sósíalistar uppskera vel í kosningum og treysta sér í svo hógværa stjórn eða vilja verja hana gegn því að ákveðin mál náist í gegn. Þá gæti Gunnar Smári Egilsson orðið samgöngu og sveitarstjórnarráðherra. Afhverju ekki?”
Hugleiðingar Þóru Kristínar hafa vakið mikla athygli og skapað umræðu.
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir:
„Þetta lítur vel út - nema þetta er sem sagt stjórn eins og sú í Reykjavík sem sossar vilja ekki styðja eða vera með í þannig að atkvæði greitt Sósíalistaflokkknum er atkvæði gegn svona stjórn.“
Þór Saari, fyrrverandi þingmaður sem er nú genginn til liðs við Sósíalistaflokkinn, er ekki sáttur: „Þetta er stæk hægri stjórn. Svo er heldur ekki í boði að virða ekki niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um nýja stjórnarskrá. Látum ekki tímann sem liðinn er villa okkur sýn í siðferðismálum. Valdarán er valdarán og við búum við það af hendi Fjórflokksins. Sem svo sérkennilega vill til að eru allir í þinni óskastjórn.“
Þóra svaraði um hæl: „Ég var nú bara að velta því fyrir mér hvort það gæti verið annar kostur í stöðunni en það afhenda Sjálfstæðisflokki valdataumana baráttulaust og tvær auðsveipar hækjur til að styðja sig við.“
Hallgrímur Helgason, rithöfundur, bætti svo við: „Bara ef hún Kata væri nú til í þetta.“