Þóra arnórs ver umfjöllun kastljóss

\"Kastljós er fréttatengdur þáttur. Það er frétt að maður sem hlaut 16 ára fangelsisdóm fyrir 15 og hálfu ári hafi fengið uppreist æru. Það er líka frétt að hann telji sig ekki þurfa að fá meðmæli Lögmannafélags Íslands og þreyta próf að nýju til að fá réttindasviptinguna frá 2001 fellda niður.“

Þetta segir Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, í skriflegu svari við fyrirspurn Hringbrautar. Hún bendir á að í málinu séu lögmenn ósammála um túlkun laga.

Katrín Oddsdóttir hefur gagnrýnt eins og Hringbraut hefur fjallað um það sem hún hefur kallað hefndarþorsta í umfjöllun Rúv og gerir hún athugasemd við vinnubrögðin eins og lesa má um hér. Af því tilefni sendi Hringbraut Kastljósinu fyrirspurn.

\"Fréttamaðurinn ræddi bæði við Atla sjálfan og fjölskyldu Einars Arnar áður en umfjöllunin fór í loftið. Hvergi var hallað á Atla eða nokkuð sagt um það hvað væri rétt eða sanngjarnt í málinu, enda verður skorið úr því fyrir dómi. Sakamálið sjálft var ekki til umfjöllunar eða aðdragandi þess, heldur þær staðreyndir sem fyrir liggja,“ segir Þóra Arnórsdóttir.