Þolum vel að vera kallaðir þjófar

"Þegar stórfelldar breytingar á samfélaginu eiga sér stað ætti það ekki að koma neinum á óvart að lögin sjálf verði að stærra vandamáli en brot á sömu lögum. Stundum er lögbrotið einfaldlega ekki jafn alvarlegt vandamál og löggjöfin sjálf, " skrifar Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is. Þar leggur hann út af orðum Vilhjálms Bjarnasonar þingmanns Skjálfstæðisflokksins sem sagt hefur Pírata kenna sig við skipulagða glæpastarfsemi.


Helgi Hrafn segir þessa umræðu eiga sér skýringu; Píratar telji að höfundarréttarlög eigi ekki að vera upplýsingaréttinum yfirsterkari, finna þurfi annað viðskiptamódel í samfélaginu svo báðir aðilar, jafnt þeir sem vilji vernda höfunda og hinir sem þrá frjálsan aðgang að upplýsingu, geti unað glaðir við sitt. Annars geti sjálfstæðismenn trútt um talað, segir Helgi Hrafn og heldur skrifunum áfram: "Þegar Ísland vildi sjálfstæði mátti alveg uppnefna talsmenn þess landráðamenn, og meðan við búum við löggjöf á borð við núríkjandi útfærslu á höfundarétti, vímuefnalöggjöfina og annan úr sér genginn lagabálk, munu Píratar þola ásakanir um að vera þjófar og glæpamenn."


Og hann heldur áfram: "En ef Píratar snerust um þjófnað og glæpamennsku, þá væri engin ástæða til að blanda sér í pólitík - við værum einfaldlega glæpagengi. En raunveruleikinn er sá að víða er löggjöfin mun stærra vandamál en vandamálið sjálft sem henni er ætlað að leysa. Við teljum að landslög eigi að vera skynsamleg, sanngjörn og í takti við raunveruleikann, en að þegar svo sé ekki, þá beri að endurskoða löggjöfina á undan raunveruleikanum."