Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og mikill áhrifamaður innan Sjálfstæðisflokksins til árafjölda tekur undir gagnrýni Áslaugar Friðriksdóttur í nýjasta hefti Mannlífs þar sem hún segir þeim refsað sem hafa aðra skoðun en forysta flokksins.
„Sjálfstæðisfólk á ekki að vera hrætt við eða víkjast undan að ræða ólík sjónarmið á sínum sameiginlega vettvangi,“ segir Styrmir í nýjasta pistli sínum í Morgunblaðinu, en þar er hann vikulegur penni, svo oft svíður nokkuð harkalega undan innan gamla flokksins.
Í Mannlífsviðtalinu talaði Áslaug um skort á umburðarlyndi fyrir gagnstæðum skoðunum og harðri valdabaráttu innan Sjálfstæðisflokksins. Hún sagði frá því að fámennur hópur hafi handvalið frambjóðendur og útilokað aðra, jafnvel fólk sem hafi barist „ötullega fyrir borgina“.
Bæði Áslaug og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi, sóttust eftir því að verða oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en það var Eyþór Arnalds sem bar sigur úr býtum og leiðir lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Styrmir tekur undir gagnrýni Áslaugar og segir að það sé því miður mikið til í henni. „Það hefur lengi verið of mikil tilhneiging innan Sjálfstæðisflokksins til þess ýmist að þegja aðrar skoðanir en þær sem eru ríkjandi hverju sinni í hel eða gera lítið úr þeim eða telja þá sem hreyfa öðrum sjónarmiðum eiga betur heima í öðrum flokkum.“
Í pistlinum tekur Styrmir mið af hefðbundnum stjórnmálaflokkum á Íslandi og spyr: „Hvað veldur því að stjórnmálaflokkar, sem berjast fyrir lýðræði og frjálsum skoðanaskiptum í orði, eiga nú orðið svona erfitt með að umbera önnur sjónarmið en þau sem ríkja hjá forystusveit hverju sinni?“