Þolir hjónabandið framhjáhald?

Eitt heitasta umræðuefni síðustu vikna verður tekið fyrir í sjónvarpsþættinum Fólk með Sirrý í kvöld, en þar verður fjallað um framhjáhald og hvernig hægt er að takast við það innan hjónabandsins.

\"Gestir mínir í kvöld hafa mikla reynslu af því að aðstoða fólk sem hefur siglt í strand með líf sitt vegna framhjáhalds,\" segir Sirrý um efni þáttarins: \"Gerendur og þolendur framhjáhalds koma í viðtöl hjá prestum og fjölskylduráðgjöfum og reyna að endurbyggja traust og koma lífi sínu í lag eftir það áfall sem framhjáhald getur verið,\" segir hún, en gestir þáttarins eru séra Guðrún Karls Helgudóttir, prestur í Grafarvogi sem er vön að tala við fólk í gleði og sorg, hjónavígslum og skilnuðum, Hafliði Kristinsson, fjölskylduráðgjafi sem fær margt fólk til sín sem er í sárum vegna framhjáhalds - og loks er það Ágústa Ósk Óskarsdóttir sem skrifaði ritgerð í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands um það hvort parasambönd eiga líf eftir framhjáhald.

Gestirnir ræða meðal annars um ástæðu framhjáhalds, hvar hætturnar liggi - og spurninguna hvort fólk eigi að segja frá eða þegja um framhjáhaldið, hvaða afleiðingar framhjáhaldið getur haft og hvort hægt sé að ætlast til þess á tímum frjálslyndis að fólk sé trútt einum maka alla ævina.

Horfa á þáttinn hér: