Þola ekki sigur framsóknar

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er gestur í Þjóðbraut í kvöld. Þorsteinn mun sækjast eftir að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður í komandi kosningum.

Þorsteinn segir vissulega andstreymi vera gegn flokknum um þessar mundir. Hann sagði þá hafa sigrað í kosningunum 2013. „Margir eiga erfitt með að þola það.“

Þorsteinn er stuðningsmaður formannsins, Sigmundar Davíð Gunnlaugsson, og vill að hann haldi áfram að leiða flokkinn. Þorsteinn sagði að þegar Sigmundur hafi verið kosinn formaður hafi fylgi flokksins verið rétt um sjö prósent og minnir á að flokkurinn fékk tæplega tuttugu og fimm prósent í síðustu kosningum.

Þorsteinn er viss um að flokkurinn eigi eftir að eflast. Sagðist viss um að hann fari vel yfir tíu prósenta fylgi.