Þöggun um bók karls th. um engeyinga

Hinir ósnertanlegu - saga um auð, völd og spillingu er lítil en afar snörp bók eftir Karl Th. Birgisson sem kom út nú í desember.
 
Bókin fjallar um Engeyinga sem hafa verið fyrirferðarmiklir og ófyrirleitnir í samfélaginu. Bókin hefst á sorgarsögu sem afi núverandi fjármálaráðherra bar ábyrgð á. Sveinn Benediktsson kom fram af svo mikilli hörku og mannvonsku að saklaus maður á Siglufirði fyrirfór sér.
 
Þá er fjallað um syni hans, Benedikt og Einar, en mestur hluti bókarinnar snýst um Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins og vafasamt fjármálavafstur hans. Á bókarkápu segir að 130 milljarðar hafi verið afskrifaðir vegna fjölskyldufyrirtækja Bjarna Benediktssonar og þar er spurt hvers vegna hann skrökvi sífellt að þjóðinni.
 
Í bókinni eru þessar staðhæfingar rökstuddar með margvíslegum hætti.
 
Í ljósi þess að Bjarni gegnir embætti fjármálaráðherra verður að líta þannig á að þessi bók sé hálfgerð hryllingssaga.
 
Það vekur athygli hve litla umfjöllun bókin hefur fengið í fjölmiðlum. Það er eins og samræmd þöggun sé í gangi. Einungis Eyjan.is og Stundin.is hafa fjallað um bókina auk þess sem minnst hefur verið á hana hér á Hringbraut.is.
 
Því verður illa trúað á Kjarnann, DV, Fréttablaðið og Vísi.is að þeir miðlar taki þátt í samræmdri þöggun með Morgunblaðinu og RÚV.
 
Eða óttast menn valdið?