Þjónusta 80% framleiðslu í reykjavík

Á höfuðborgarsvæðinu skýra verslun, hótel, veitingahús og samgöngur rúman helming vaxtar í framleiðslu frá 2009 til 2013.

Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ og Byggðastofnunar.

„Það er ekkert nýtt að þjónusta beri upp hagvöxt í höfuðborginni, en nú hjálpar örugglega til að þetta er sú starfsemi sem ferðamenn nýta sér helst,“ segir í skýrslunni.

Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað mjög mikið hér á landi undanfarin ár eins og kunnugt er. Greinar sem tengja má ferðaþjónustu vaxa líka mikið á Suðurnesjum, Norðurlandi og Suðurlandi. eftir því sem fram kemur í skýrslunni.

Fjármálaþjónusta, tryggingar og þess háttar hefur einnig eflst nokkuð á höfuðborgarsvæðinu. Utan höfuðborgarsvæðisins hefur fjármálastarfsemi hins vegar dregist saman frá 2009. Miklu munar um samdrátt í fjármálaþjónustu og skyldum greinum á Suðurnesjum, á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og á Suðurlandi.

„Sérstaklega vekur athygli samdráttur á þessu sviði á Suðurnesjum. Þar voru mikil umsvif í fjármálastarfsemi fram að hruni bankanna og miklu fé var varið til þess að reisa Sparisjóðinn í Keflavík við, en sú tilraun tókst ekki. Samdráttur í sjávarútvegi virðist vera meginskýringin á falli framleiðslu á Vestfjörðum undanfarin ár, en þar hafa byggingar, fjármálaþjónusta og skyldar greinar einnig dregist mikið saman. Sjávarútvegur hefur vaxið utan höfuðborgarsvæðisins ef Vesturland og Vestfirðir eru undanskilin. Á Vesturlandi og Austfjörðum hefur stóriðja eflst.“

Þá kemur fram í skýrslunni að þjónustugreinar eru um 80% framleiðslu á höfuðborgarsvæðinu, en 55% í landsbyggðunum. Hins vegar er sjávarútvegur 16% framleiðslu í landsbyggðunum, en aðeins 2% þess sem framleitt er á höfuðborgarsvæðinu. Þá eru 12% framleiðslu í landsbyggðunum í stóriðju og veitum, en 5% í höfuðborginni og 3% framleiðslu í landsbyggðunum eru í landbúnaði, en landbúnaður er nánast enginn á höfuðborgarsvæðinu. Sjávarútvegur er enn stærsta atvinnugreinin á Vestfjörðum og Austfjörðum, en mest munar um stóriðju í framleiðslu á Vesturlandi og á Austurlandi.