Þjófur í áskirkju í miðri útför

\"Hann yrði auðvitað maður að meiri ef hann skilaði fengnum. Það er bréfalúga á kirkjunni ef hann vildi smeygja einhverju þar inn,“ segir séra Sigurður Jónsson, prestur í Áskirkju, og biðlar til þjófs að skila veski sem hann stal úr yfirhöfn kirkjugests í útför í síðustu viku.

Rætt er við Sigurð í Fréttablaðinu í dag, en þar kemur fram að þjófurinn hafi athafnað sig í miðri útför í Áskirkju: \"Þetta var á miðvikudaginn var, þá var útför og nokkuð fjölmenn,\" segir Sigurður í frétt blaðsins og bætir við: \"Þannig var að kirkjuvörðurinn kemur að manni sem er að þreifa á yfirhöfnum, ávarpar hann og spyr hann hvort hann vanti eitthvað. Þá slær hann kirkjuvörðinn högg í andlitið og hleypur út. Það var farið á eftir honum, bæði kirkjuvörðurinn og útfararþjónar. En hann komst undan. Svo kom í ljós að maður saknaði veskis úr yfirhöfn sinni,“ segir séra Sigurður um atburðarásina.

Hann segir í fréttinni að lögreglu hafi komið strax á staðinn og tekið skýrslu af þeim sem urðu vitni að þessu. Séra Sigurður segist halda að þjófar fylgist jafnvel með útfarartilkynningum. Aðferðin sé þekkt þótt í Áskirkju hafi menn ekki orðið fyrir barðinu á þjófum áður með þessum hætti. „Þetta er býsna langt gengið en maður hefur heyrt áður að þetta sé þekkt aðferð. Það er eins og menn fylgist þá með útfarartilkynningum,“ segir prestur Áskjrkju í Fréttablaðinu í dag.