Þar sem þjónustu Vegagarðarinnar er lokið á aðfangadegi verða flestar aðalleiðir á Norður- og Austurlandi fljótlega ófærar eða lokaðar og ekki verður nein þjónusta fyrr en milli kl: 10:00 og 14:00 á morgun, jóladag.
Þetta kemur fram í tilkynningu Vegagerðarinnar í dag, en á Norðaustur- og Austurlandi er lokað er um Fagradal og Fjarðarheiði. Aftur á móti er búið að opna Ólafsfjarðarmúla, en þar er þæfingur og skafrenningur. Moksturbíll verður á svæðinu til kl: 14:00 en eftir það fer færð að þyngjast mjög fljótlega.
Færð er annars víðast hvar þokkaleg á landinu, þótt fara verði með gát sakir hálku á flestum vegum. Hálka er á Reykjanesbraut. Það er hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Suðurlandi en þæfingsfærð á Suðurstrandarvegi og á mörgum útvegum.
Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja og skafrenningur á flestum leiðum. Á Bröttubrekku er snjóþekja og stórhríð. Ófært er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og skafrenningur á flestum leiðum. Snjóþekja, hálka og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og á Innstrandarvegi. Ófært er á Þröskuldum og einnig á Klettsháls og þar er óveður. Þæfingur er á Kleifaheiði.