Vegagerðin hefur ákveðið í samráði við Lögregluna á Suðurlandi að að loka hringvegi 1 frá Markarfljóti að Breiðamerkurlóni klukkan 14:00 í dag í ljósi slæmrar veðurspár sem gerir ráð yfir miklu ofsaveðri.
Í tilkynningu frá Almannavörum ríkisins segir að lokunarstaðir við Lómagnúp og Freysnes verði einnig mannaðir.
Veður fer einnig mjög versnandi á Austfjörðum upp úr klukkan 17:00. Sama á einnig við um allt norðvestanvert og norðanvert landið um klukkan 19:00.
Ekkert ferðaveður verður á þessum svæðum og ljóst að fjallvegum verður lokað með kvöldinu, útlit er fyrir að sama veður verði áfram á laugardag og þjónusta á vegum verði í lágmarki og einungis á láglendi.