Þjóðmál fimm daga í viku á hringbraut

Sú dagskrár- og ritstjórnarbreyting hefur verið ákveðin hjá sjónvarpsstöðinni Hringbraut að Þjóðbraut verður framvegis á dagskrá fimm daga vikunnar. Þjóðbraut verður sýnd frá mánudögum til fimmtudaga í  viku hverri. Þá verður bein útsending bæði í sjónvarpi og útvarpi alla sunnudagsmorgna klukkan 10-11.30 í umsjá Sigurjóns Magnúsar Egilssonar.

Sigurjón Magnús segir að samfélagsleg umræða verði í fararbroddi, enda sé mikil þörf fyrir umræður í því ölduróti sem nú steðji að Íslandi.

Í þætti kvöldsins verður rætt við Jón Trausta Reynisson á Stundinni, Sunnu Valgerðardóttur á Kjarnanum og Aðalstein Kjartansson hjá Reykjavík Media.

Aðalgestur þáttarins annað kvöld verður Jón Daníelsson prófessor í hagfræði við London School of Economics.