Þjóðleikhúsið í leikferð um landið

Á morgun hefst ferðalag Þjóðleikhússins út á land þar sem börnum verður boðið að njóta hinnar feykivinsælu Sögustundar.

Þjóðleikhúsið hefur undanfarin sjö ár boðið börnum í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu árlega í leikhúsið, til að njóta leiksýninga sem nefnast Sögustund. Nú er röðin komin að landsbyggðunum.

Í frétt frá Þjóðleikhúsinu segir að Þjóðleikhúsið sé leikhús allra landsmanna og þess vegna hafi verið ákveðið að fara með Sögustundina í leikferð og gefa börnum á landsbyggðunum tækifæri á að kynnast töfraheimi leikhússins. Í sýningunni kemur fram brúðugerðarmeistarinn Bernd Ogrodnik ásamt brúðum sínum en umsjón hefur Þórhallur Sigurðsson leikstjóri.

Leikferðin hefst með heimsókn til Vestmannaeyja á morgun, 20. október þar sem tekið verður á móti börnum í leikhúsi bæjarins. Í kjölfarið verða aðrir landshlutar heimsóttir. 

 Sýnt verður á þessum stöðum:

 Vestmannaeyjum, 20. október í Leikhúsinu

Ísafirði, 22. október í Edinborgarhúsinu

Selfossi, 23. október í Litla leikhúsinu

Egilsstöðum, 27. október í Valaskjálf

Akureyri, 30. október  í Hofi