Þjóðkirkjan í raun glæpastofnun!

Mikil læti hafa orðið eftir að Langholtsskóli lagði af heimsóknir nemenda í Langholtskirkju fyrir jólin. Fyrst var greint frá málinu í DV.

Í ummælum við frétt Nútímans, sem tók saman áhugaverð ummæli lesenda dv.is vegna fréttarinnar, segir Magnús S. Magnússon,  titlaður rannsóknaprófessor við HÍ, um heiftarleg viðbrögð lesenda í kommentakerfinu, þar sem m.a. er spurt hvort hangikjötið og þjóðsöngurinn fái að fjúka næst, að viðbrögðin sýni e.t.v. á hve miklu byrjunarstigi  umræða um trúmál sé meðal Íslendinga þar sem nokkur hluti sé ólæs á önnur tungumál og menningu.

„Sú einangrun hefur líklega að mestu ráðið að við erum meðal síðustu þjóða Evrópu og heimsins til að vera í raun með ríkiskirkju og ríkistrúarbrögð ásamt ofurlaunuðum (og ókeypis) ríkismenntuðum prestum með 300 helstu skaruthýsi þjóðarinnar til yfirráða fyrir sitt starf um kynslóðir og aldir við að útbreiða fáránleg hindurvitni óupplýstar brútal fornaldar meðal varnarlausra barna, og það enn í dag á 21. öld. Með heimboði og heiðrun F. Graham hefur kirkjan gengið í fararbroddi þeirra sem hingað flytja inn það allra lægsta í kristinni ofstækis og bókstafstrú vesturlanda, bókstafstrú blíubeltis BNA. Trú sem hafnar nútíma vísindum stangist þau á við hróplega vanþekkingu í Biblíunni, bókstafstrú trú sem meira að segja Páfinn hafnar algerlega,“ skrifar prófessorinn nokkuð kjarnyrtur.

Hann heldur áfram:

„Það er sannarlega ástæða til að finna til með börnum þar sem enn ein kynslóðin þarf að búa við fáránlegt ofríki frumstæðra fornaldar trúarbragða innan um fjölda fullorðna, sem fjölmargir hafa aldrei losnað undan heilaþvotti kirkjunnar og/eða heilaþveginna foreldra. Sé litið á stöðu nútíma þekkingar, er þannig í raun erfitt að sjá kirkjuna sem annað en glæpastofnun, margfalt hættulegri börnum en nokkurt annað félag í okkar landi. Að fólk treysti umsögnum þeirra sem af þeirri starfsemi njóta ofurlauna á grundvelli lítillar og úreltrar menntunar er dapurlegra en tárum taki,“ bætir prófessorinn við.

Sjá áhugaverðustu ummælin um frétt DV hér.