Svo sem kunnugt er tyilkynnti Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra Evrópusambandinu þann12. mars að ríkisstjórnin líti svo á að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að Evrópusambandinu. Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar var ekki borin undir Alþingi, enda taldi Gunnar Bragi valdið vera framkvæmdavaldsins í þessum efnum eins og hann orðaði það á sínum tíma. Í könnunn i sem Gallup kynnti í dag segjast nærri þrír af hverjum fjórum landsmönnum að ríkisstjórnin hefði átt að ræða við Alþingi áður.
Ef könnunin er skoðuð betur sést að 88% kjósenda Framsóknarflokksins segjast hlynnt því að draga umsóknina til baka, en 76% kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Kjósendur stjórnarandstöðuflokkanna eru aftur á móti annarrar skoðunar. Aðeins 6% Samfylkingar vilja draga umsóknina til baka. Hjá kjósendum annara flokka á Alþingi er hlutfallið 14 til 19%.
Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur lagt fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðnana. Um 65% þeirra sem tóku afstöðu sögðust hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu en 24% sögðust vera henni andvíg.