Þjóðin vill ekki að bjarni selji banka

Aðeins fimmti hver Íslendingur treystir núverandi stjórnvöldum til að halda utan um sölu á hlut ríkisins í íslenskum bönkum.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Þar er vitnað til könnunar Gallup en Gallup vann könnunina fyrir Pírata.

Spurt var: „Hversu vel eða illa treystir þú núverandi ríkisstjórn til að sjá um sölu á hlut ríkisins í bönkum?“

21,5 prósent treysta ríkisstjórnarflokkunum vel til þess. 61,4 prósent treysta ríkisstjórn illa og 17,2 prósent svara hvorki né.

Fréttablaðið hefur eftir Grétari Þór Eyþórssyni, prófessor í stjórnmálafræði: „Þessi niðurstaða sýnir að ríkisstjórnarflokkarnir njóta lágmarkstrausts til að standa að einkavæðingu bankanna. Það traust er talsvert minna en samanlagt fylgi þeirra nú. Það segir sína sögu.“

Í fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir að þriðjungshlutur ríkisins í Landsbankanum verði seldur.

Könnunin var gerð 3.-14. desember. 1.433 voru í úrtaki Gallup, 61,5 prósent svöruðu.