Vel yfir 29 þúsund manns hafa skrifað undir kröfu þess efnis að forseti Íslands synji nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra um makrílkvóta samþykktar, verði það að lögum frá Alþingi nú á vorþinginu, en vísi því þess í stað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ljóst er að fjöldinn fer yfir 30 þúsund manns í dag.
Að baki undirskriftasöfnuninni standa þau Agnar K. Þorsteinsson, sérfræðingur í upplýsingatækni, Bolli Héðinsson hagfræðingur, Elín Björg Ragnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur, Henný Hinz hagfræðingur, Jón Sigurðsson, fyrrverandi skólastjóri Bifrastar, Jón Steinsson hagfræðingur og Þorkell Helgason, fyrrverandi prófessor.
Í tilkynningu segja þau að frumvarpið, sem felur í sér úthlutun makrílkvóta til útgerðarmanna til sex ára hið skemmsta og að veiðigjöld verði ákveðin til þriggja ára, fela í sér grundvallarbreytingu á tilhögun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Verði það að lögum, sé útgerðinni í fyrsta sinn veitt óafturkallanlegt forræði yfir aflaheimildum til lengri tíma en eins árs. Alþingi geti ekki í reynd afturkallað þá ráðstöfun.
„Lagasetning af þessu tagi kemur í veg fyrir að unnt sé að kveða á um skilyrðislaust eignarhald þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindinni með ákvæði í stjórnarskrá sem jafnframt tryggi að þjóðin njóti fulls gjalds af afnotum á auðlindinni,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Undirskriftarsöfnunin fer fram að tjhodareign.is.