Þjóðin tók völdin af stjórninni

Þjóðmálarýnirinn Jónas Kristjánsson segir á bloggi sínu í dag að í raun og sann hafi þjóðin tekið völdin af ríkisstjórninni í málefnum flóttamanna, en hann vandar stjórnvöldum ekki kveðjurnar.

\"Eygló Harðardóttir og ríkisstjórnin runnu glæsilega á rassinn með eymdarhugmynd sína um móttöku 50 flóttamanna,\" skrifar ritstjórinn gamli í dag og bætir við, orðhvass sem fyrr: \"Meðan hefðbundnir fjölmiðlar sváfu helgasvefni, lék allt á reiðiskjálfi á fésbók. Sjálfboðaliðar buðu fram vinnu, aðstöðu, fé, húsnæði og hvaðeina. Sveitarfélög tilkynntu vilja til aðildar að þjóðarátaki.\"

Og hann er hvergi hættur: \"Í helgarlok var búið að skjóta 50 manna nízku Eyglóar í kaf. Hærri tölur voru nefndar, 500 manns og jafnvel 5000. Að frumkvæði stjórnarandstöðunnar verður líklega samið um 500 manna millileið. Rasistar liggja orðlausir til kojs. Jafnvel Framsókn svíkur þá.\"

Niðurstaða Jónasar er þessi: \"Hin frábæra fésbók sýndi um helgina, að þjóðin er fólk, ekki rasistar. Hún færir þjóðinni valdið, bravó.\"