Þjóðin syrgir tómas m. tómasson

Tómas M. Tómasson, tónlistarmaður er látinn eftir stutt en erfið veikindi, en hann var einhver dáðasti og vinsælasti listamaður þjóðarinnar um áratugaskeið, enda í framvarðasveit íslenskra dægurlagasveita frá því um og upp úr 1970.

Kunnastur er Tómas fyrir bassaleik sinn og sviðsframkomu með Stuðmönnum, svo og einstakan kvikmyndaleik með félögum sínum og vinum í þeirri síungu sveit, en þá naut hann sín ekki síður í leik og túlkun hinnar goðsagnakenndu grúppu Þursaflokksins sem braut í blað í rokksögu Íslendinga í kringum 1980. Hann hóf sinn þétta og mikla hrynferil í Rifsberju, en gerðist litlu síðar liðsmaður Change, sem skipuð var nokkrum helstu poppstjörnum Íslendinga á miðjum áttunda áratugnum - og freistaði þess með þeim að meika það á breskri grundu. Um það leyti lagði hann Björgvini Halldórssyni lið við gerð hinna sívinsælu Vísnaplatna sem komu út á áttunda og níunda áratugnum, en Tómas var á löngum kafla ævi sinnar einn virtasti upptökumaður hljómplatna hér á landi.  

Björgvin minnist vinar síns í gærdag, þegar andlátsfregnin barst landsmönnum og kveðst hugsa til hans með miklum hlýhug og segir að hann hafi verið með \"eindæmum eindæmum skemmtilegur og orðheppinn og afbragðs tónlistarmaður.“

Á sömu nótum er Stuðbróðir Tómasar, Valgeir Guðjónsson, sem skrifar hugnæm minningarorð á fésbókarsíðu sínu í gær: \"Í dag var óvenjulegur dagur - á árvissu afmæli mínu fékk ég fregnina um að Tómas Magnús Tómasson aldavinur minn og félagi hefði kvatt þessa okkar skömmu jarðvist. Ég syrgi hanni og kveð með virktum - einstakur öðlingur til orðs og æðis. Á 66 ára afmælisdegi sé ég á bak förunauti í hálfa öld og mun sakna hans allar götur. Tommi kann að meta þessa kveðju ... \"

Tómas var í einkar einlægu og persónulegu viðtali við Sigmund Erni í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut á vormánuðum á síðasta ári. Í minningu listamannsins verður þátturinn endursýndur næstkomandi mánudagskvöld klukkan 20:30, en hann verður einnig aðgengilegur á fésbókarsíðu Hringbrautar í dag og næstu daga.

Tómas fæddist 23. maí 1954.