Þjóðin skiptist nokkurn veginn í tvo hópa í afstöðu sinni til þess hvort ráðherra eigi að ráða örlögum ESB-umsóknarinnar eða hvort Alþingi skuli eiga þar síðasta orðið. Þetta kemur fram í nýjustu viðhorfskönnuninni á hringbraut.is en þar segjast 51 prósent þátttakenda vilja aðkomu þingsins að málinu en rétt tæpur meirihluti að ráðherra einn geti ráðið þar málum.
Ekkert þjóðmál er jafn umdeilt nú um stundir og ráðslag Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra í ESB-málinu, en hann færði sem kunnugt er forkólfum Evrópusambandsins einskonar bænaskjal í síðustu viku þess efnis að sambandið mætti framvegis líta svo á að Ísland væri ekki umsóknarríki. Mjög er á reiki hvað skjalið þýðir, jafnt meðal stjórnmálamanna og fræðimanna, en ESB hefur sjálft tekið af skarið í þessum efnum og segir bréf ráðherra engu skipta; umsókn Íslendinga um ESB-aðild sé eftir sem áður gild. Undir þetta sjónarmið tók Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur í fréttum RÚV í gærkvöld; umsóknin yrði ekki tekin til baka nema með þeirri sömu aðkomu Alþingis og samþykkti hana á sínum tíma.
Skýrslu utanríkisráðherra um ESB-málið er að vænta á Alþingi á þriðjudag, en forseti Alþingis hefur til þessa neitað stjórnarandstöðunni um að taka málið fyrir á þingfundum utan boðaðrar dagskrár.