Þjóðin sé að útmála sig sem kjána

Davíð Þór Jónsson prestur segir um Panamaskjölin og áhrif þeirra að málið sé búið að stórskaða ímynd Íslands. Ef kjósa eigi útrásarforsetann Ólaf Ragnar í 6. sinn sé þjóðin búin að afhjúpa sig sem kjána.

Þetta kom fram á Þjóðbraut Sigurjóns M. Egilssonar sem frumsýndur var á Hringbraut í morgun, bæði í útvarpi og sjónvarpi.
Frosti Logason dagskrárgerðarmaður sagði í sömu umræðu um ákvörðun forstjóra Stapa í gær að segja af sér vegna Panamaskjalanna, að hún væri sú eina rétta. Burtséð frá því hvort lög hafi verið brotin eigi þjóðin að njóta vafa sem hann skapist. Það væri mikill dómgreindarskortur hjá Bjarna Ben að hafa ekki stigið til hliðar. Almenningi sé misboðið og ráðherra eigi að stíga til hliðar vegna aðildar Bjarna að Panamaskjölunum.

Þátturinn er endursýndur kl.11.30 í útvarpi og sjónvarpi Hringbrautar.

Smellið hér til að hlusta á útvarp Hringbrautar FM89,1.