Þjóðin klofin gagnvart sumartíma

Helmingur aðspurðra í óformlegri skoðanakönnun sem verið hefur á forsíðunni á hringbraut.is siðustu daga kveðst ekki vilja taka upp sumartíma hér á landi. Innan við þrjðungur þátttakenda í könnunni er hlynntur því að breyta klukkunni á sumrin.


Þessi niðurstaða er í nokkru ósamræmi við umræðuna sem verið hefur um sumartíma á Íslandi undanfarin ár, en þar hefur krafan um að breyta klukkunni vor og haust verið nokkuð hávær og áberandi. Raunar vandast heldur málið í allri þeirri umræðu hvort færa eigi klukkuna fram eða aftur ef á annað borð eigi að hrófla við henni. 9% aðspurðra í könnuninni vildu færa hana fram, sama prósenta vildi færa hana aftur.


Breytingin snýst í reynd um það hvort menn vilja vakna í meiri birtu á morgnana eða njóta henni lengur fram eftir kvöldi.