Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata viðraði á Alþingi í gærdag þá skoðun sína að þjóðin kjósi num þá virkjanakosti sem þingheimur hefur tekist á um síðustu daga, án nokkurs árangurs.
Hann mat það svo í ræðu sinni að málþóf væri ekki góð leið fyrir stjórnarandstöðuna til að knýja fram vilja meirihluta þjóðarinnar, eðlilegra væri að beina svo veigamiklu og viðkvæmu máli til þjóðarinnar: "Ég er ekkert viss um að þjóðin myndi endilega hafna þessum kostum en það er ekki meirihlutinn sem ræður í þessu máli. Það er meirihlutinn á þinginu, en ekki meirihlutinn úti í samfélaginu. Við vitum það ekki. Það er ekki fyrr en við höfum fengið ákvæði í stjórnarskrá um að minnihluti landsmanna, kannski tíu prósent, geti kallað mál sem þing hefur samþykkt til sín. Þá væri ég til í að taka málþófsréttinn af þingmönnum. Því þá væri það þjóðin sem gæti stoppað þingið. Það væri langbest," sagði þingmaðurinn úr pontu Alþingis í gær.
Þingmenn hafa riofist um rammaáætlun í sjö daga samfellt og komið upp undir liðnum fundarstjórn forseta í nærri eitt þúsund skipti. Hver næturfundurinn af öðrum um virkjanakosti og náttúruvernd hefur rekið annan, en fundað var vel yfir miðnætti bæði í gær og fyrradag.