Þjóðin heimtar nýjan landspítala






Fjórir af hverjum fimm Íslendingum vilja að nýr Landspítali verði reistur á næstu árum. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu-rannsókna sem birtar voru á RÚV í morgun. Aðeins sex prósent eru andvíg byggingu nýs spítala.






 


Um þriðjungur svarenda sagðist vera ósáttur við að nýr Landsspítali risi við Hringbraut. Tæpur helmingur var hins vegar sáttur við það. Kjósendur Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru líklegri til að vera andvígir því að spítalinn rísi við Hringbraut en kjósendur annarra flokka. Kjósendur Samfylkingar og Vinstri-grænna eru hlynntastir því að hann verði reistur þar. Jafnframt eru konur sáttari við Hringbrautina en karlar. Kjósendur Bjartrar framtíðar eru líklegastir til að vera fylgjandi byggingu nýs spítala. Einnig eykst stuðningur við nýja byggingu með auknum tekjum og aldri.


849 manns tóku þátt í könnuninnni sem var framkvæmd um mánaðarmót apríl/maí. Þáttakendur voru á aldrinum 18-75 ára af öllu landinu.


Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans fagnar þessari niðurstöðu en hún leiði í ljósi mjög afgerandi stuðning þjóðarinnar við að nýr spítali rísi. „Þegar við skoðum hvernig fólki líst á staðsetninguna þá sjáum við að það er ekki einungis stuðningur við að spítalinn rísi heldur er vaxandi stuðningur við að hann rísi við Hringbraut,“ sagði Páll í samtali við Óðin Jónsson í Morgunútgáfunni á RÚV í morgun.