Íslensk þjóð er á móti að trúfélög fái ókeypis lóðir til bygginga trúarbygginga. 75,9 prósent, svarenda í könnun MMR, segist andvígur úthlutun lóða og þar af eru 48,3 prósent mjög andvíg. Einungis átta prósent eru fylgjandi úthlutun.
Nokkur munur reyndist vera á afstöðu fólks eftir lýðfræðihópum og ber að benda á nokkur atriði. Einstaklingar í yngsta aldurshópnum (18-29 ára) reyndust líklegri en aðrir til að vera andvígir (82,3%) en einstaklingar 68 ára og eldri reyndust líklegastir til að vera fylgjandi (15,5%). Alls sögðust 77,6% íbúa af höfuðborgarsvæðisins vera andvíg samanborið við 72,3% þeirra sem búsett voru á landsbyggðinni.
Þegar afstaða er skoðuð eftir stuðningi við flokka sést að stuðningsmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna voru töluvert líklegri en stuðningsmenn annarra flokka til að vera fylgjandi úthlutun ókeypis lóða en 16,6% Samfylkingarfólks sögðust fylgjandi og 17,1% Vinstri grænna. Jafnframt voru þeir sem studdu ríkisstjórnina (80,6%) líklegri til að vera andvígir en þeir sem ekki studdu ríkisstjórnina (73,7%).