Þjóðin borðar meira af hollustufæði

Tæpur þriðjungur (32%) fullorðinna borðar grænmeti tvisvar sinnum á dag eða oftar árið 2017 og hefur ekki orðið mikil breyting frá því fyrir ári síðan.
Grænmetisneysla hefur hins vegar aukist frá árinu 2014, eins og neysla á ávöxtum og berjum, en þá sögðust 15% fullorðinna borða grænmeti tvisvar á dag eða oftar. Þetta kemur fram í nýrri könnun Landlæknisembættisins á mataræði landsmanna.
 
Konur borða oftar grænmeti en karlar. Hjá konunum borðar elsti aldurshópurinn sjaldnast grænmeti en hlutfall kvenna sem borðar grænmeti tvisvar á dag eða oftar í hinum tveimur aldurshópunum er það sama (43%). Hjá körlunum borðar yngsti aldurshópurinn oftast grænmeti en færri í eldri aldurshópunum borða grænmeti tvisvar á dag eða oftar.
 
Rúmlega fjórðungur (27%) Íslendinga borðar ávexti og ber tvisvar sinnum á dag eða oftar árið 2017 og er lítil breyting frá því fyrir ári síðan´. Aukning á
neyslu þessara fæðuteganda hefur þó orðið frá því að mælingar hófust árið 2014 en þá sögðust 18% fullorðinna borða ávexti og ber tvisvar á dag eða
oftar. Konur borða oftar ávexti en karlar. Lítill munur er á ávaxtaneyslu kvenna eftir aldri en karlar á aldrinum 35 til 54 ára borða heldur minna af ávöxtum en yngsti aldurshópur karla
 
Um 25% fullorðinna neyta gosdrykkja fjórum sinnum í viku eða oftar árið 2017. Þar af drekka um 14% sykraða gosdrykki og um 11% sykurlausa gosdrykki. Karlar drekka oftar sykraða gosdrykki en konur. Hlutfall karla sem drekka sykraða gosdrykki fjórum sinnum í viku eða oftar hefur þó lækkað á milli ára, fór úr 20% árið 2016 í 16% 2017. Hlutfall kvenna er hins vegar óbreytt milli ára og segjast 11% kvenna drekka sykraða gosdrykki fjórum sinnum í viku eða oftar.