Sannkölluð þjóðhátíð í laugardalnum

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann glæsilegan og sannfærandi sigur á sterku liði Tékka í landsleik liðanna í Laugardalnum í kvöld eftir að hafa verið undir þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik.

Jafnvægi var meðal liðanna í fyrri hálfleik og greinilegt á leik Tékka að þeir hefðu sætt sig við jafntefli gegn baráttuglöðu og samheldnu liði heimamanna. Það voru hins vegar Tékkar sem komust yfir eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik með hörkuskoti rétt fyrir utan vítateiginn sem endaði ofarlega í hægra horninu án þess að traustur markvörður íslenska liðsins, Hannes Halldórsson kæmi nokkrum vörum við.

Á næstu mínútum var augljóst að íslenska liðið ætlaði ekki að gefast upp; það pressaði ofarlega á vellinum með þeim árangri að fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson skoraði með hnitmiðuðum skalla framhjá Petr Chech í marki Tékka, en stoðsending Ara Freys Skúlasonar utan af miðjum vellinum var sérlega glæsileg utanfótarsending sem söng á höfði norðanmannsins.  

Það kom svo í hlut Kolbeins Sigþórssonar að innsigla sigur íslenska liðsins, en eftir varnarmistök á leikteig Tékka hrökk boltinn til Kolbeins sem náði valdi á boltanum á sekúndubroti, lék á Chech í markinu og laumaði boltanum inn fyrir línuna.

Með þessu móti hefndu íslensku strákarnir fyrir tapið í Tékklandi, en sá leikur þróaðist eins í tölum; Íslendingar komust þar yfir en Tékkar skoruðu svo tveimurr mörkum betur.

Íslendingar tróna nú efstir í sínum riðli fyrir EM í Frakklandi að ári - og hafa unnið það glæsilega afrek að vinna Tyrki, Hollendinga og Tékka á heimavelli. Sigurinn í kvöld eykur líkur þeirra á að komast í lokakeppnina til muna.