Þjóðhagsspá á vetri 2017

Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út þjóðhagsspá að vetri í riti sínu Hagtíðindum.  Útlit er fyrir kröftugan hagvöxt í ár.  En það hægir á gangi hagkerfisins þegar líða tekur á spátímann.

Fjárfesting eykstr hægar á næstunni en undanfarin ár.  Spáð er miklum vexti íbúðafjárfestingar og opinberra fjárfestinga.  Samdráttur verður meðal annars í stóriðjutengdri fjárfestingu. 

Viðskiptajöfnuður verður áfram jákvæður.  Hann versnar þó heldur þegar líður á spátímann.  Gengi krónunnar styrktist framan af árinu en gaf eftir þegar á leið.  Tólf mánaða verðbólga er lág. 

[email protected]