Þjóðhagsráðið stenst ekki lög

Félag kvenna í atvinnulífinu vakti athygli á samsetningu nýs þjóðarráðs í dag með táknrænum gjörningi í Þjóðmenningarhúsinu.

Þjóðhagsráð hefur verið skipað og þar sitja eingöngu karlar. Í ráðinu sitja 5 fulltrúa; frá Seðlabankannum, forsætisráðherra og fjármálaráðherra, fulltrúi SA og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Það hefur vakið athygli að engin kona situr í þessu opinbera ráði . Stjórn FKA ákveðað í dag að leika þennan leik eftir sem táknrænan gjörning til að vekja athygli á samsetningu þjóðarráðsins og lét taka mynd af sér í sama stíl og ráðsmennirnir.

Krefjast viðbragða stjórnvalda

Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs og Kolbrún Hrund Víðisdóttir, sem situr í stjórn FKA eru hingað sögðu í viðtali á Hringbraut að verið væri að beita húmor sem vopni en bentu svo á alvarleika málsins. Fimmtánda grein jafnréttislaga nr. 10/2008 eru brotin með þessari skipan og benti Katrín Olga á að hægur leikur væri að fá hæfar konur til að vera fulltrúar þessara stofnana og nefndi t.d. Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðing í Seðlabankanum. Kolbrún nefndi sagði að þetta væri einfaldlega úrelt og „trist“ samsetning og fyrirmyndin hæfði engan vegin árinu 2016 þar sem tugir kvenna væru reynsluboltar á öllum sviðum þjóðfélagsins og innan FKA.

Í áyktun stjórnar FKA er bent á lögbrotið og skorað á stjórnvöld að bregðast við gagnrýninni. Þar stendur einnig að innan vébanda FKA og hvarvetna í samfélaginu sé hundruðir kvenna sem bíða í startholunum, tilbúnar að taka á sig ábyrgð líkt og sæti í þjóðhagsráði

Hlutverk ráðsins

Hlutverk ráðsins verður að greina stöðuna í efnahagsmálum og ræða samhengi ríkisfjármála, peningastefnu og vinnumarkaðar í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni. Ráðið er samráðsvettvangur þeirra sem hafa víðtækust og sem mest áhrif í íslensku efnahgaslífi. Ráðið tengist SALEK samkomulaginu á vinnumarkaði en fulltrúar launþegahreyfingarinnar vildu þó ekki taka sæti í því þar sem félagslegar áherslur voru ekki þær sem þeir vildu sjá.