Rúmlega 80.500 manns eru meðlimir í facebook síðunni „Keypt í Costco – myndir og verð“. Þar eru líflegar umræður um verðkannanir á matarverði. Sigurlaug Hauksdóttir,frá verðlagseftirlits ASÍ og Hugi Þórðarsson, einn upphafsmaður Strimilsins, fyrirtækis sem hannaði hugbúnað til að safna gögnum um verðlag koma í Þjóðbraut. Neytendasamtökin reka neytendaappið frá Huga og félögum.
Margir ætla sér að hlaða batteríin í sumarfríinu og ná úr sér streitu og stressi. En hvað ef sumarfríið er ekki nóg? Hvað ef við erum hreinlega útbrunnin? Við heyrum af þessu hjá Helgu Björk Jónsdóttir sem „brann út“ fyrir nokkrum árum. Helga Björk er djákni og myndlistarkennari og fann leiðina upp eftir lífshættuleg veikindi.
Áhrif Brexit á íslenska hagsmuni var efni opins fundar í morgun sem fjölmennt var á. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í samstarfi við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Bændasamtökin sem hélt fundinn. Þorgerður Katrín mætir til Lindu í þáttinn og ræddi einnig stuttlega um vopnaða löggæslu hér í borg.
Áttan er hópur ungra skemmtikrafta sem lifir aðallega á samfélagsmiðlum þar sem hópurinn birtir myndböndin sín og tónlist - Áttuna þekkir unga kynslóðin - vinsældirnar eru orðnar ótrúlegar og Áttan orðin afþreyingarfyrirtæki sem kemur ungu fólki á framfæri. Fyrir hönd Áttunnar koma Gunnlaugur A. Gunnlaugsson, Ragnhildur Hólm og Aron Ingi Davíðsson.