Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, sem var gestur Páls Magnússonar á Þjóðbraut í gærkvöld segir að félagið geti ekki elt lággjaldastefnu British Airways sem boðar allt niður í fimm þúsund króna fargjald milli Keflavíkur og Lundúna.
Björgólfur kom víða við í viðtalinu og talaði meðal annars um rekstrarumhvergi fyrirtækja hér á landi sem eru í æ harðari samkeppni við erlend félög sem búa flest hver við stöðugra efnahagsumhverfi.
Þegar talið barst að aukinni samkeppni í flugi milli Íslands og álfanna beggja vegna Atlantsála sagði Björgólfur að Icelandair ætlaði ekki að elta nýjasta tilboðiðið í þeim efnum. \"Ég þekki ekki viðskiptamódel British Airways varðandi þetta flug eða hversu mörg sæti verða boðin á þessum kjörum, en það er ljóst að við keppum ekki við þetta verð,\" sagði hann um nýjustu tíðindin, en heyrst hefur af fyrirætlunum breska flugfélagsins um að hefja í næsta mánuði flug milli Keflavíkur og London þar sem lægsta fargjaldið verður um 5000 krónur fyrir aðra leið.
\"Við keppum ekki við svona verð,\" sagði Björgólfur í þættinum.
Þjóðbraut er frumsýnd á miðvikudagskvöldum í haust og vetur, klukkan 21:00 og endursýnd strax klukkan 23:00, en þáttinn má sjá í heild eða í klippum inni á hringbraut.is.