Þjóðaríþrótt hefur verið í stjórnartíð gömlu valdaflokkanna að hygla ákveðnum hópum svo að þeir geti efnast umfram aðra. Þetta sagði Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, á þingi í dag í umræðum um stefnuræðu nýs forsætisráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar.
Í stefnuræðu nýs forsætisráðherra í morgun om fram að Framsóknarflokkurinn ætlaði að beita sér gegn verðtryggingu. Katrín efaði það. Hún gerði harða hríð að nýjum forsætisráðherra, sagði að viðhorf Sigurðar Inga að telja í lagi að fólk geymdi fé í skattaskjólum kynti undir ófriðarbál og hefði vakið mikla reiði í samfélaginu. Með því vísaði Katrín til þess sem m.a. kom fram í frétt Hringbrautar frá þingumræðum í gær. Almenningi væri sagt að best væri að nota krónu á sama tíma og útvalinn hópur fengi að fjármagna sig á alþjóðlegum mörkuðum. Samt héldi Sigurður Ingi því fram að tekið yrði á verðtrygginunni. Það væri brandari, enda hefði Sjálfstæðisflokkurinn neitað því staðfastlega.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sagði að þráseta Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins væri orðin eins og partý sem staðið hefði of lengi og farið úr böndunum þrátt fyrir að búð væri að hringja á lögguna. Bjarni Ben ætlaði enn að selja banka og spila Wild Boys enn eina ferðina.