Þjóðargæfa: besta þorskrall frá 1996

Vísitala þorsks í stofnmælingu að hausti árið 2015 er sú hæsta síðan mælingar hófust árið 1996, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun í morgun, en niðurstöður úr stofnmælingu botnfiska að haustlagi 2015 liggja nú fyrir. 

Vísbendingar eru um að 2014 árgangur þorsks sé stór og sá stærsti síðan mælingur hófust árið 1996. Svipað fékkst af öðrum tegundum í stofnmælingu að hausti árið 2015 og árið 2014 og eru vísitölur sumra tegunda þær hæstu frá upphafi rannsóknanna. Vísbendingar eru um að 2014 og 2015 árgangar ýsu séu yfir meðalstærð eftir langvarandi lélega nýliðun. 

Heildarvísitala þorsks mældist sú hæsta frá upphafi stofnmælingarinnar árið 1996 og hefur farið hratt vaxandi síðastliðin 8 ár.  Hún er nú tvöfalt hærri en árin 2008-2009. Hækkunina má rekja til aukins magns af stórum þorski síðast liðin ár, en einnig aukins magns af 40-60 cm þorski í mælingunni í ár. Í ár er vísitala allra lengdarflokka yfir meðaltali tímabilsins. 

Mæling á magni ársgamals þorsks (árgangur 2014) í stofnmælingunni í mars benti til þess að árgangurinn væri sterkur og er það staðfest í haustrallinu. Mældist árgangurinn sá sterkasti frá því að mælingar hófust árið 1996. Vísitölur þriggja til sex ára þorsks, árganganna frá 2009-2012, mældust einnig háar, en vísitala tveggja ára fisks, þ.e. árgangsins frá 2013, mældist lág líkt og í stofnmælingunni árið 2014 og í stofnmælingunni í mars árið 2015. Fyrstu vísbendingar um árganginn frá 2015 gefa til kynna að hann sé um meðalstærð, en það mun skýrast betur að ári.

Meðalþyngdir fimm ára og eldri þorsks eru nú yfir meðaltali áranna 1996-2015, en um eða undir meðaltali hjá þriggja og fjögurra ára fiski.

Mest fékkst af þorski djúpt norðvestur, norður og austur af landinu og á Þórsbanka fyrir suðaustan land líkt og undanfarin ár, segir í tilkynningunni frá Hafró í morgun.