Þingvallanefnd braut jafnréttislög gegn ólínu þorvarðardóttur - ríkislögmaður fenginn til að semja um bætur

Ríkislögmaður hefur verið beðinn af Þingvallanefnd um að semja við Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur. fyrrverandi alþingismann Samfylkingarnar, um bótagreiðslur. Ákvað nefndin þetta fyrir stuttu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag

Ólína sótti um stöðu Þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum en fékk ekki starfið. Ákvað Þingvallanefnd að ráða Einar Á.E. Sæmundsen í starfið. Ólína kærði ráðningu Einars til kærunefndar jafnréttismála og komst hún að þeirri niðurstöðu að jafnréttislög hafi verið brotin við ráðningu Einars.

„Málið er í farvegi. Það hafa staðið yfir viðræður við ríkislögmann um nokkurn tíma um bætur. Á meðan þær viðræður standa yfir þá tel ég ekki rétt að tjá mig mikið um málið. Ég myndi nú telja að báðum aðilum sé rétt og skylt að reyna að ná samningum áður en til þess kemur. Ég vona að það skýrist fljótlega hvert framhaldið verður. Enginn fulltrúi meirihlutans sem bar ábyrgð á þessari ákvörðun hefur haft samband við mig, hvorki til að biðja mig afsökunar eða ræða þetta við mig að öðru leyti. Þá ekki formaður nefndarinnar, hvorki opinberlega né í einkasamtölum,“ segir Ólína.

Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG og formaður Þingvallanefndar, segir að ekki liggi fyrir nein upphæð í kröfunni og að nefndin muni lúta úrskurðinum

„Þingvallanefnd féllst á að lúta þessum úrskurði. Það kemur fram í honum að þetta snýst í meginatriðum um huglæga matsþætti, ekki þá faglegu. Það var ekki rétt frá þeim gengið við ráðgjöfina sem við fengum.“