Þórólfur Árnason forstjóri Samgöngustofu var boðaður á sameiginlegan fund utanríkismálanefndar Alþingis og umhverfis- og samgöngunefndar sem hófst klukkan níu. Umræðuefni fundarins eru vopnaflutningar, sem fréttaskýringaþátturinn Kveikur á RÚV fjallaði um á þriðjudag. Þar kom fram að íslensk yfirvöld hafi heimilað flutning vopna til Sádi-Arabíu, þaðan sem þau geta borist til Jemen og Sýrlands, þrátt fyrir að íslensk lög og alþjóðasáttmálar banni að vopn séu flutt til svæða, þar sem þau geti verið notuð gegn almenningi eða til stríðsglæpa.
Þingið spyr þórólf um vopnin
Fleiri fréttir
Nýjast