Þingmennirnir hafa ekkert gert

„Þrír meðframbjóðendur mínir, sem allir lentu í þremur efstu sætum prófkjörsins unnu skipulega að því að fæla fólk frá því að kjósa mig. Þannig rottuðu þau sig saman, Ragnheiður Elín, Unnur Brá og Ásmundur, og höfðu erindi sem erfiði en þessi vinnubrögð þeirra eru hins vegar einsdæmi í sögu prófkosninga Sjálfstæðisflokksins.“

Þannig skrifar Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, sem nú óvænt freistar þess að leiða lista Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi. Hann er mjög gagnrýnin á þingmenn flokksins í kjördæminu.

„En hvað hefur þetta blessað fólk gert síðastliðin þrjú ár í skjóli ríkisstjórnarmeirihluta? Ekki neitt, hreinlega ekki neitt sem hefur komið Suðurkjördæmi til góða. Þau hafa lagt fram þrjú mál, ráðherrann mál um staðgöngumæðrun, sem líklega verður aldrei hægt að samþykkja vegna þess að það er ekki hægt að tryggja rétt barnsins, mál um náttúrpassa sem allir vita hvernig fór og þingmannamál um sölu áfengis í búðum, dapurlegt mál.“

Og ekki bara að Árni gagnrýni. Hann talar einnig um sjálfan sig: „Þetta er allt og sumt, en tríóið leyfði sér að bregða fyrir mig fæti og fella mig á hlaupabrautinni með 40 mál í farteskinu, stór og smá varðandi Suðurkjördæmi og landið allt, meðal annars mál upp á einn milljarð króna uppgjör ríkisins við Reykjanesbæ vegna Helguvíkurhafnar, mál sem ég var búinn að vinna með í þrjú ár og fá samþykkt með tillöguuppáskrift í samgöngunefnd með meirihluta þingmanna Alþingis en Vinstri grænir (lýðræðiselskandi flokkurinn) náðu að stöðva það í nefnd með ríkisstjórnarvaldi þannig að það fór ekki til atkvæðagreiðslu í þinginu. Þingmenn sjálfstæðisflokksins höfðu ekki einu sinni rænu á að fylgja þessu eftir við síðustu stjórnarmyndun sem þau áttu sjálf aðild að.“

„Ég er ekki tapsár, maður lærir slíkt við eðlilegar aðstæður í íþróttunum, ég er ekki að leita að samúð, hentar mér ekki, en kannski svolítið af sanngirni og réttlæti. Ég þarf að vinna, vil vinna og get unnið. Ég kann vel til verka á vettvangi stjórnmálanna, er hugsjónamaður og þoli ekki að sjá tækifærin fara forgörðum vegna sinnuleysis og klúðurs fólks sem hefur að því er virðist eingöngu áhuga á samkvæmisleikjum,“ skrifar Árni Johnsen í grein í Morgunblaðinu í dag.