Þingmenn vilja skoða eignarhald dv

Þingmennirnir Birgitta Jónsdóttir og Róbert Marshall hafa báðir óskað eftir því að eignarhald á DV verði gert opinbert svo allur vafi verði tekinn af því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafi komið að fjármögnun á kaupum á blaðinu á síðasta ári.


Það þarf að skýra eignarhald á DV,“ segir Róbert Marshall þingmaður Bjartrar framtíðar við vefmiðilinn Stundina í dag. Hann segir að ásakanir á hendur forsætisráðherra um að hann hafi beitt sér fyrir lánafyrirgreiðslu MP banka til Pressunnar eða tengdra aðila undirstriki mikilvægi þess að eignarhald fjölmiðla sé skýrt.


Vísir greindi í gær frá því að Hlín Einarsdóttir og Malín Brand hefðu reynt að kúga fé út úr forsætisráðherra á þeim forsendum að meint aðkoma hans að lánafyrirgreiðslu til Pressunnar eða félögum tengd fyrirtækinu yrðu gerð opinber. 


Ekki eru til nein opinber gögn sem tengja ráðherrann við fjölmiðlaveldi Björns Inga Hrafnssonar, útgefanda og eins aðaleigenda Pressunnar ehf., sem fer með eignarhald nokkurra fjölmiðla, meðal annars DV sem var yfirtekið síðastliðið haust. Sjálfur hefur Björn Ingi aftekið með öllu að Sigmundur Davíð, sem er persónulegur vinur hans, hafi komið að fjármögnun DV þegar miðillinn skipti um eigendur á síðasta ári. Hann birti stöðuuppfærslu á Facebook síðdegis í gær þar sem hann sagði Sigmund Davíð ekki hafa fjármagnað kaup Pressunnar á DV og að hann ætti ekki hlut í blaðinu. Þar sagði hann einnig: „Ég er harmi sleginn yfir fregnum dagsins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. Forsætisráðherra fjármagnaði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blaðinu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé tillit til þess að hér er mannlegur harmleikur á ferðinni og að aðgát skuli höfð í nærveru sálar.“


Sigmundur Davíð sendi frá sér yfirlýsingu um málið á sjötta tímanum í gær. Þar segir hann m.a.: „Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hótananna er rétt að taka fram að ég hef engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson, né hef ég komið að kaupum Vefpressunnar á DV á nokkurn hátt.“