Þingmenn Bjartrar framtíðar vilja að stjórnvöld endurskoði ákvörðun sína um fjölda flóttamanna sem Ísland ætlar að taka við á næstu tveimur árum. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill tífalda fjöldann.
Stjórnvöld hafa sagst ætla að taka á móti 50 flóttamönnum á næstunni, en alda fólksflutninga frá stríðshrjáðum svæðum fyrir botni Miðjarðarhafs og í austanverðri Afríku skellur nú á Evrópu - og hafa hundruð þeirra farist, ýmist á leiðinni yfir Miðjarðarhaf, eða um borð í flutningabílum á leiðinni vestur eftir Evrópu. Nú síðast fundust 70 látnir ferðamenn í flutningabíl í Ungverjalandi og í dag fundust tugir flóttamanna í bíl í Austurríki og var það þungt haldið af súrefnisskorti.
Þingmenn Bjartrar framtíðar eru ekki þeir einu við Austurvöll sem vilja endurskoða fjölda flóttamanna sem Ísland á að taka við á næstu árum, raddir sama efnis hafa heyrst innan úr Samfylkingunni, Vinstri grænum og á meðal stjórnarliða, en Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokksins er meðal þeirra sem gagnrýnir ákvörðun stjórnvalda um að taka aðeins við 50 flóttamönnum.
Elín telur að tífaldur sá fjöldi væri nær lagi, að því er fram kemur í stöðuuppfærslu hennar á Facebook: \"Hundruð ef ekki þúsundir láta lífið. Börn drukkna daglega eða kafna aftan í loftlausum vöruflutningabíl á hraðbraut í Austurríki. Mér finnst framlag íslenskra stjórnvalda sem hafa tilkynnt að við munum taka við 50 flóttamönnum alltof rýrt og eiginlega til skammar fyrir okkur sem þjóð. Kannski væri tíföld sú tala nær lagi,\" segir Elín í stöðuuppfærslunni.