Þingmenn úthluti listamannalaunum

Sérstök umræða um listamannalaun fór fram á Alþing í gær. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Suðurkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokk fór fram á umræðuna. Hann vill að þingið fái úthlutunarvaldið, að það hverfi frá listamönnum sjálfum.

Ásmundur sagðist hafa áhyggjur af þróun listamannalauna og hvernig listamenn deili gæðunum sínum á milli. Launin ættu að hans mati ekki síst að vera sprotalaun. Hann spurði hvort eðlilegt væri að stjórn RSÍ veldi nefnd sem úthluti öllum stjórnarmönnum RSÍ 12 mánaða launum.

„Er eðlilegt að Listaháskólinn skipi úthlutunarnefnd en kennarar skólans séu árum saman á launum. Verður ekki að breyta þessu? Spurði Ásmundur þingmaður og sagði að listamenn sæju ekki siðleysið í eigin vinnubrögðum.

Hann sagði að ef þingmenn störfuðu saman með sama hætti og listamenn myndi margt heyrast frá litamönnum sem „hefðu hátt um ýmis mál“, þeir yrðu að þola að þeirra mál væru rædd. Þingmaðurinn sendi Andra Snæ Magnússyni sérstaka sneið með því að nefna dæmi um rithöfund sem hefði þegið listamannalaun í níu ár „en skilað litlu meira en einni bók“.

Klíkuskapur listamanna var Ásmundi hugleikinn í þingræðunni. Þau orð sem vöktu mesta athygli var sá vilji hans að færa valdið til Alþingis. Þá gæti verið rétt að tekjutengja laun listamanna og beina fremur sjónum að ungum og óreyndum listamönnum sem ekki hefðu sterkt bakland.

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra var til andsvars og sagði ekki vanþörf á að ræða þetta mál. Hann sagðist þegar hafa átt samtal við formann stjórnar listamannalauna um breytingar.

Illugi hafnaði þeirri tillögu Ásmundar að þingmenn ættu að fá úthlutunarvaldið. Óumdeilt væri að listamenn skiluðu sínu, fámennu málsvæði væri mikilvægt að hafa öfluga rithöfunda og markaðslögmál myndu ekki eins og sér standa undir þeim örmarkaði sem Ísland væri.

Ráðherra sagðist ekki hrifinn af tekjutengingu. Hvað varðaði framvindu launa við verk þá væri það þannig að listamenn mættu ekki gegna annarri vinnu í meira en sex mánuði til að fá laun. Ekki komi til greina að hætta úthlutun listamannalauna.

Nokkrir þingmenn fordæmdu þá hugmynd Ásmundar að taka upp pólitíska úthlutun ritlauna. Um heildarfjárhæð launanna, rúmlega 500 milljónir, sagði Ólína Þorvarðardóttir að sú fjárhæð væri líkt og andvirði tveggja húsa við Ægissíðuna.

Margir þingmenn minnihlutans á þingi ræddu bæði samfélagslega hagrænt og menningarlegt mikilvægi listamanna og töldu að þeim vegið, auk þess sem enn væri þessi hópur sakaður um dund, leti og slugs.

Róbert Marshall, BF, kallaði ræðu Ásmundar \"óvenju lélega\" og taldi hann hafa tekið upp lygasögu úr fjölmiðlum og fabúlerað um. Hann nefndi dæmi um kjördæmapot Ásmundar sjálfs sem veikti hans málflutning um klíkuskap og taldi að populísk þrá og leit Ásmundar að atkvæðum skýrði hug hans og þingræðu.