Brynhildur Pétursdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, vill að upplýsingar um laun og allar greiðslur til þingmanna verði gerðar opinberar og aðgengilegar fyrir almenning. „Við höfum ekkert að fela,“ sagði hún í ræðustól Alþingis þegar hún tók málefnið fyrir.
Brynhildur tók málið upp í lið sem kallast störf þingsins. Hún sagði greinilegt að áhugi væri á þessum upplýsingum og að flestir þingmenn kannist við að hafa fengið fyrirspurnir frá fjölmiðlum kaup og kjör. Nærtækast í þeim efnum er að nefna fyrirspuirning um ráðgjafalaun Illuga Gunnarssonar fyrir einkafyrirtækið Orku Energy sem hann vann hjá á meðan hann var í leyfi frá Alþingi í upphafi síðasta kjörtímabils.
Brynhildur vísaði vísaði í ræðu sinni í hneykslismál sem kom upp í Bretlandi: "Þá kom í ljós að þingmenn gátu, að því er virtist óáreitt, vaðið í opinbera sjóði og úr þessu varð skandall. Í framhaldinu var sett á fót stofnun undir breska þinginu sem heitir Independent Parliamentary Standards Authority. Þessi stofnun hefur meðal annars það hlutverk að upplýsa um laun og í raun allan starfskostnað sem þingmenn fá greiddan og eiga rétt á."
Hún sagðist velta fyrir sér hvort þingheimur ætti ekki að fara að dæmi Breta: Við þurfum ekkert að setja á fót sérstaka stofnun, en hvort við ættum ekki að tryggja að allar upplýsingar sem til falla vegna starfa okkar í þágu Alþingis séu uppi á borðum. Það er ekki eins og við höfum eitthvað að fela hér en staðreyndin er sú að skortur á gagnsæi og óskýrleiki á þessu sviði er til þess fallinn að vekja upp spurningar og hvort sem þær eru á rökum reistar eða ekki þá grafa þær undan trausti.“