„Við höfum oft verið við sem erum þingsins megin í þessum efnum, ósáttir þá við hvernig málin hafa verið sett fram af hálfu ritstjóra Morgunblaðsins í ritstjórnarskrifum, og teljum að það sé verið að magna upp áhyggjur af þáttum sem ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af.“
Þetta sagði Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun. Þar ræddi Birgir um þá ólgu sem á sér stað innan Sjálfstæðisflokksins sem helst er til kominn vegna orkupakka 3 og síðan gagnrýni fyrrverandi formanns, Davíðs Oddssonar á sinn gamla flokk. Birgir segir að það hafi verið vitað að orkupakkinn yrði alltaf umdeildur innan þingflokksins. Viðbrögðin hafi hins vegar verið of harkaleg.
Þá ræddi Birgir um gagnrýni Davíðs Oddssonar en hann hefur gagnrýnt sinn gamla flokk ítrekað í ritstjórnargreinum. Hefur það tekið á marga Sjálfstæðismenn að fá gagnrýni úr þessari átt. Um það segir Birgir:
„Það gerir þetta mál svona erfitt tilfinningalega fyrir marga flokksmenn.“
Birgir sagði að þingmenn væru ósáttir við hvernig Davíð hefði sett fram sína gagnrýni. „Við sem erum þingsins megin í þessum efnum, (erum) ósáttir við hvernig málin hafa verið sett fram af hálfu ritstjóra Morgunblaðsins í ritstjórnarskrifum, og teljum að það sé verið að magna upp áhyggjur af þáttum sem ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af.“
Þá var Birgir spurður hvort hann teldi að uppgjör innan flokksins væri yfirvofandi. Um það sagði þingflokksformaðurinn: „Ekki uppgjör í þeim skilningi að við séum að sjá menn labba hver í sína áttina, skella hurðum og þess háttar. Ég hef ekki trú á því.“