Þingmenn með atlögu að kennitöluflakki

Þingmenn úr fjórum flokkum leggja í dag fram lagafrumvarp sem kveður á um að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar megi ekki á síðustu þremur árum hafa verið í forsvari fyrir tvö félög eða fleiri sem orðið hafa gjaldþrota.

\"Þetta er fyrsta raunverulega atlagan sem gerð er gegn kennitöluflakki, þar sem hópur manna hefur stundað misnotkun á þeirri takmörkuðu ábyrgð sem felst í félagaforminu,\" segir Karl Garðarsson, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, en hann bendir á að Ríkisskattstjóri hafi nýlega áætlað að skattaundanskot vegna kennitöluflakks geti numið um 80 milljörðum króna á ári: \"Þetta er ámóta upphæð nemur kostnaði við byggingu nýs Landspítala – og það á hverju ári,\" minnir Karl á og segir að þingmenn ráðherrar hafi haft stór orð um þá meinsemd sem kennitöluflakk er, en það hafi þó verið minna um athafnir hjá þeim.

Karl segir að ákvæði lagafrumvarpsins sé vissulega íþyngjandi, \"en þó nauðsynlegt með tilliti til þeirra hagsmuna sem fyrir hendi eru. Stundum er nauðsynlegt að setja skorður á frelsið, sérstaklega ef hagmunir þorra almennings eru þess eðlis.\"

Karl kveðst stefna að því að leggja fram fleiri frumvörp á næstu mánuðum þar sem tekið er á kennitöluflakki.