Þingmenn komnir í sumarfrí – fjöldi mála sem ekki tókst að ljúka

Í gær var síðasti dagur Alþingis fyrir sumarfrí þingmanna. Fjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024 var samþykkt með atkvæðum frá stjórnarþingmönnum en Píratar, Samfylkingin og Viðreisn voru á móti og Miðflokkurinn og Flokkur fólksins sátu hjá. Breytingar á fjármálastefnu fyrir árin 2018-2022 voru sömuleiðis afgreiddar. Ekki náðist að ljúka fjölda mála sem voru lögð fram á vorþingi.

Fréttablaðið greinir frá.

Meðal þeirra mála sem ekki náðist að ljúka við þinglok eru frumvarp til laga um þjóðarsjóð, tvö frumvörp sem tengjast þriðja orkupakkanum, stjórnarfrumvarp menntamálaráðherra til heildarlaga um sviðslistir og stjórnarfrumvarp dómsmálaráðherra um þrengingu ákvæðis almennra hegningarlaga um hatursorðræðu.

Frumvörp sem ekki er búið að afgreiða við þinglok falla niður og þurfa því að fara aftur í gegnum þinglega meðferð á nýju þingi, að því gefnu að það sé enn vilji ríkisstjórnarinnar.

Þá komust nokkur stjórnarfrumvörp ekki á dagskrá þingsins til þinglegrar meðferðar, þeirra á meðal fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra og frumvarp dómsmálaráðherra til nýrra laga um bætur vegna meiðyrða.

Kvörtun Ásmundar enn óafgreidd

Forsætisnefnd Alþingis hefur ekki enn tekið endanlega afstöðu til kvörtunar Ásmundar Friðrikssonar vegna ummæla Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur. Sem kunnugt er komst siðanefnd Alþingis að þeirri niðurstöðu að Þórhildur Sunna hefði gerst brotleg við siðareglur þingsins með ummælum í Silfrinu á RÚV um aksturskostnað Ásmundar. Forseti Alþingis segir í samtali við Fréttablaðið að málið verði á dagskrá forsætisnefndar fljótlega.

Fjöldi ósvaraðra fyrirspurna

Fyrirspurnir þingmanna til ráðherra sem ekki hefur verið svarað við þinglok falla niður líkt og í tilfelli frumvarpa og þarf að leggja fram að nýju óski þingmennirnir enn svara. Fréttablaðið greinir frá því að fjöldi þessara fyrirspurna sé 162.

Umræða um þriðja orkupakkann mun fara fram síðsumars áður en haustþing verður sett og því gætu enn borist svör við fyrirspurnum áður en sú umræða fer fram.