Þrír stjórnarþingmenn hafa ekki trú á því að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar takist að afnema gjaldeyrishöftin á þessu kjörtímabili, að því er fréttastofa Bloomberg hefur eftir íslenskum heimildarmönnum. Fréttastofan greinir frá því í dag að enda þótt flestir þingmenn á Alþingi Íslendinga telji að verkefnið klárist á næstu tveimur árum, gæti verulegs vafa á því á meðal margra þingmanna, einkum þeirra löglærðu eins og það er orðað í fréttinni, en efasemdarmennirnir eru þó ekki nafngreindir.
Á meðal stjórnarandstöðunnar telja 16 þingmenn að ekki takist að afnema höftin á næstu tveimur árum, 16 telja að skref verði stigin í frjálsræðisátt en tveir telja að höftin verði að fullu horfin áður en aftur kemur að kosningum, að því er fram kemur á Bloomberg í dag.